Hvernig varð Guðni Th. forsetinn með buffið?

„Snemma minnar forsetatíðar fékk ég það góða boð að vera viðstaddur afhjúpun söguskiltis úti á Bessastaðanesi. Það kom ekki til álita að láta aka þarna út eftir en það getur verið hryssingslegt úti á Álftanesi svo maður þarf að klæða sig vel. Og sem ég er að fara út úr húsi, finn ég ekki mitt venjulega höfuðfat og róta í hirslum krakkanna.“ Meira.