Í Marple-málinu eru Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, og Guðný Arna Sveinsdóttir, fyrrverandi fjármálastjóri Kaupþings, ákærð fyrir fjárdrátt og umboðssvik. Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, er ákærður fyrir hlutdeild í fjárdrætti og umboðssvikum Hreiðars Más og Guðnýjar Örnu og Skúli er ákærður fyrir hylmingu.