Til stendur að fella niður 59 prósent toll á snakk framleitt úr niðursneiddum kartöflum 1. janúar 2017. Samkvæmt innflutningstölum frá nóvember 2014 til október 2015 gæti sú aðgerð ein og sér sparað neytendum 162 milljónir króna á ári. Félag atvinnurekenda hefur sagt tollinn vera verndartoll en því hefur ríkið neitað og vann dómsmál í Hæstarétti þar að lútandi í febrúar 2016. Framleiðendur íslensks snakks segja tugi starfa í hættu.