Skráðu þig inn til að horfa á þáttinn
Athugið að Dagmálsþættir eru aðeins fyrir áskrifendur Morgunblaðsins.
Umbúðalaust
8. apríl 2024
Svend Richter er einn reyndasti tannlæknir Íslands. Hann nam réttartannlæknisfræði og sú menntun leiddi hann á framandi og hryllilegar slóðir. Í Kósovó rannsakaði hann við þriðja mann fjöldagrafir eftir stríðsátökin í landinu í lok síðustu aldar. Þær rannsóknir fóru fram í skjóli Bandaríkjahers en á vegum Alþjóða stríðsglæpadómstólsins í Haag. Svend sá þar mörg dæmi um stríðsglæpi og hörmulegar aftökur barna og kvenna. Í fjöldagröfunum var oft búið að koma fyrir jarðsprengjum til að valda sem mestum skaða og drepa þá sem mögulega leituðu sannleikans.
Hann var kvaddur á vettvang á hamfarasvæðið eftir flóðbylgjuna miklu sem skall á Tælandi á jólunum 2004. Hann segir þá reynslu jafnvel hafa verið hræðilegri en rannsóknir á fórnarlömbum stríðsátakanna á Balkanskaga.
Svend Richter er gestur Dagmála í dag og ræðir ofangreinda atburði. En hann hefur víðar komið við sögu og hefur nýverið lokið störfum fyrir Kennslanefnd eftir 35 ára starf.
Hann hefur ásamt fleirum annast aldursgreiningar á einstaklingum sem segjast vera börn við komu til Íslands í leit að skjóli eða hæli. Börn eiga skýran rétt samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna þegar eru forsjárlaus á flótta. Barn er einstaklingur undir átján ára aldri. Við aldursgreiningar hefur komið í ljós að yfir áttatíu prósent þeirra sem segjast vera börn eru að segja ósatt. Það er sambærileg tala á við það sem þekkist í öðrum Evrópulöndum, í sambærilegum málum.
Þá ræðir Svend hætturnar sem felast í tannlækningum í Austur-Evrópu og þær breytinar sem hafa orðið á faginu í hans tíð.
Fáðu meira með vikupassa!
Vikupassinn veitir þér fullan aðgang að Dagmálum ásamt öllu öðru efni fyrir áskrifendur Morgunblaðsins í viku fyrir aðeins 2.629 kr.
Fréttir - Ritstjórnargreinar - Menning - Umræðan - Minningargreinar - Viðtöl - Viðskipti - Daglegt líf - Aðsendar greinar - og umfram allt: fagleg fréttamennska