Skráðu þig inn til að horfa á þáttinn
Athugið að Dagmálsþættir eru aðeins fyrir áskrifendur Morgunblaðsins.
Þjóðmálin
28. janúar 2025
Stríð hefur geisað í Úkraínu í 1.069 daga. Innrásarherinn frá Rússlandi hefur náð um tuttugu prósent af landinu en það hefur kostað þá 800 þúsund hermenn, samkvæmt upplýsingum frá úkraínskum yfirvöldum. Eru þá taldir bæði fallnir og særðir í átökunum. Mannfall Úkraínumanna er talið talsvert minna en staðfestar tölur liggja ekki fyrir. Karl Garðarsson, fyrrum fréttamaður og þingmaður hefur fylgst grannt með átökunum frá því að þau hófust. Eiginkona hans er frá Úkraínu og hann hefur farið fjölmargar ferðir til landsins frá því að stríðið hófst, nú síðast fyrir nokkrum mánuðum. Karl er gestur Dagmála Morgunblaðsins í dag og ræðir hann þar ástandið í landinu og leggur mat stöðuna.
Báðar þjóðir glíma orðið við þá stöðu að sífellt verður erfiðara að fá fólk til að ganga í herinn, til að fylla skörð fallinna hermanna. Karl segir að í dag fari ómerktar bifreiðar á vegum Úkraínuhers akandi um þorp í landinu og ungir menn sé dregnir inn í þessar bifreiðar og skráðir í herinn. Hann hefur sjálfur séð myndbönd af þessum aðferðum. Birtingarmyndin Rússlandsmegin eru hermenn frá Norður Kóreu sem staðfest er að berjast á vígstöðvunum fyrir Rússa, án þess að vita haus eða sporð á átökunum eða hvar þeir eru staddir.
Karl segir gríðarlega þreytu mega merkja á íbúum Úkraínu og allir haldi í vonina að stríðið taki enda. Þó er mjög skiptar skoðanir meðal íbúa landsins hvort semja eigi við innrásarherinn eða berjast til síðasta blóðdropa. Karl tekur eftir því hversu þessi þreyta og andleg vanlíðan hefur aukist meðal þess fólks sem hann hittir. Daglegt líf í Úkraínu er þannig að fæstir geta gert sér það í hugarlund.
Hann telur NATO hafa brugðist Úkraínu og Evrópa og Bandaríkin aðstoði landið eingöngu með þeim hætti að halda því á floti í átökunum en ekkert meira en það. Donald Trump hefur verið með yfirlýsingar um að hann muni stuðla að friði í landinu en skiptar skoðanir eru meðal Úkraínumanna um getu Trumps í þessu samhengi. Karl segir líka að Evrópa hafi verið alltof hikandi í aðgerðum sínum til stuðnings Úkraínu. Rússar skilji bara hnefann og valdið.
Fáðu meira með vikupassa!
Vikupassinn veitir þér fullan aðgang að Dagmálum ásamt öllu öðru efni fyrir áskrifendur Morgunblaðsins í viku fyrir aðeins 2.629 kr.
Fréttir - Ritstjórnargreinar - Menning - Umræðan - Minningargreinar - Viðtöl - Viðskipti - Daglegt líf - Aðsendar greinar - og umfram allt: fagleg fréttamennska