Algert heitavatnsleysi á höfuðborgarsvæðinu er ólíklegt ef eldgos yrði nærri Hellisheiðarvirkjun. Meira
Ekki er nægilega vel gætt að öryggi þjóðarinnar nú þegar Landsnet hefur fest kaup á kínverskum sæstrengjum sem lagðir verða við Íslandsstrendur. Þetta segir Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, á bloggsíðu sinni. Meira
Samdráttur í útflutningstekjum áls og kísiljárns olli því að heildarútflutningstekjur iðnaðar drógust saman á milli áranna 2022 og 2023 um 75 milljarða króna, eða tæplega 10%. Fóru þær úr 773 milljörðum króna niður í 698 milljarða, sem er 38% af heildarútflutningstekjum þjóðarbúsins. Meira
„Það er frekar lök staða í lónum og vatnsárið hefur verið slakt,“ segir Gunnar Guðni Tómasson, framkvæmdastjóri Vatnsafls, í samtali við mbl.is. Meira
HS Orka hefur lokið við að endurfjármagna skuldir félagsins og tryggja lánalínur fyrir áframhaldandi uppbyggingu hér á landi. Meira
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, bindur vonir við að framkvæmdir við Hvammsvirkjun og Búrfellslund hefjist síðar í sumar. Hann segir þróun álverðs að óbreyttu munu hafa jákvæð áhrif á rekstur fyrirtækisins í ár. Meira
Samfélagsspor af rekstri samstæðu FISK Seafood jókst um 20% milli áranna 2022 og 2023. Á síðasta ári fjárfesti félagið verulegum upphæðum í aflaheimildum og jók fjárfestingu sína í Iceland Seafood International. Meira
Nýr vindorkugarður sem fyrirhugað er að reisa í landi Sólheima í Dalabyggð mun skila um 209 MW af rafmagni með uppsetningu 29 vindmylla. Meira
Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn (ICC) fer fram á handtökuskipan á hendur Valerí Gerasímov, yfirmanni herráðs Rússlands, og Sergei Shoígú, fyrrverandi varnarmálaráðherra landsins. Meira
Alþingi samþykkti um helgina frumvörp um nýja Umhverfis- og orkustofnun og Náttúruverndarstofnun. Meira
Björn Gíslason borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og stjórnarmaður í Orkuveitu Reykjavíkur (OR) hyggst leggja fram þá tillögu á stjórnarfundi á morgun að hafin verði raforkuframleiðsla í Elliðaárvirkjun á nýjan leik, með það fyrir augum að tryggja orkuöryggi heimila í Reykjavík. Meira
Max Forster útskrifaðist af náttúrufræðibraut frá Menntaskólanum á Akureyri um síðustu helgi og dúxaði með 9,83 í einkunn. Hann stefnir á að fara í Háskólann í Reykjavík en er enn að velja á milli raforkuverkfræði og hugbúnaðarverkfræði. Meira
Tveir nýir stjórnendur hafa verið ráðnir til Orkusölunnar á undanförnum vikum. Meira
Norðmenn tilkynntu í dag að þeir ætli að veita Úkraínu styrk upp á 1,1 milljarð norskra króna, eða því sem nemur um 14,4 milljörðum íslenskra króna, til að lagfæra orkuinnviði landsins og tryggja raforkuframlag fyrir komandi vetur. Meira
Axel Viðarsson, yfirverkefnastjóri þróunar‑ og auðlindasviðs HS Orku, segir fyrirtækið vilja reyna að aðlaga virkjun þess í Krýsuvík að náttúrunni þar – ef af virkjuninni verður. Meira
„Það eru gríðarleg tækifæri sem að þarna eru fyrir hendi til framtíðar. Bæði sem hefst þá með þessari mögulegu virkjun og fjármagni sem bæjarfélagið fær út úr því,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, um samkomulag Hafnarfjarðar við HS Orku um nýtingu auðlindaréttinda í Krýsuvík. Meira
Fjarðarbyggð og Fljótsdalshreppur hafa sent frá sér ályktun þar sem þau skora á Alþingi að ljúka afgreiðslu mikilvægra mála sem bíða afgreiðslu, þar á meðal stefnu um uppbyggingu á vindorku á Íslandi. Meira
Raforkuflutningsfyrirtækið Landsnet keypti 310 GWst af rafmagni í útboði á dögunum fyrir 9.418 króna meðalverð á megawattstund. Meira
Alþýðusamband Íslands vill að gerðar verði breytingar á raforkulögum til að tryggja orkuöryggi almennings og smærri fyrirtækja og verja almenning fyrir hækkunum á raforkuverði. Frumvarp ríkisstjórnarinnar nái ekki að tryggja orkuöryggi heimilanna. Meira
Netöryggisfyrirækið Syndis hefur verulegar áhyggjur af netöryggismálum á Íslandi eftir að Danir hækkuðu viðbúnaðarstig vegna mögulegra netárása frá Rússum. Meira