Vísindamenn við Oxford háskóla munu eyða næstu þremur árum og tveimur milljónum punda, um 260 milljónum króna, í að rannsaka hvers vegna mannkynið trúir á guði.
Það er Ian Ramsey trúar- og vísindamiðstöðin sem fengið hefur styrk til að framkvæma rannsóknina og verða fengnir til verksins mannfræðingar, guðfræðingar, heimspekingar og aðrir fræðimenn. Munu þeir einkum kanna það hvort trúin á guðdóm sé innbyggð í mannlegt eðli.
Roger Trigg, sem stjórnar miðstöðinni, segir að spurningin snúist um hvers vegna fólk trúi á einhvers konar guð og eitthvað ofurmannlegt eða yfirnáttúrulegt.
„Ein ályktunin er sú að trú sé ásköpuð afstaða en að guðleysi þurfi hins vegar frekari útskýringa við."