Sömu genin virðast stýra gáfum og gæði sæðisfruma. Ný bresk rannsókn bendir til þess, að eftir því sem karlmenn eru gáfaðri framleiði þeir betri sæðisfrumur. Þetta kemur fram á fréttavef BBC.
Hópur vísindamanna frá bresku geðlæknastofnuninni rannsakaði gögn, sem safnað var hjá bandarískum hermönnum, sem gegndu herþjónustu í Víetnam stríðinu. Niðurstaðan var sú, að þeir sem fengu hærri einkunnir á gáfnaprófum virtust framleiða fleiri og hreyfanlegri sæðisfrumur.
Fjallað er um rannsóknina í tímaritinu Intelligence og þar segir, að hún virðist styðja þá kenningu, að gen sem stýra gáfnafari hafi einnig önnur líffræðileg áhrif.