Geimferðastofnun Bandaríkjanna, NASA, hefur í hyggju að senda geimjeppa að nýju til að kanna plánetuna Mars. Fyrirhugað er að það verði árið 2020. Að auki er í undirbúningi að senda mannað geimfar þangað.
Geimjeppinn Curiosity eða Forvitni var á vegum NASA á Mars í haust og aflaði þar viðamikilla upplýsinga um gerð plánetunnar.
„Stjórn Baracks Obama er afar áhugasöm um að setja á stofn viðamikla áætlun um að kanna Mars,“ sagði Charles Bolden, forstjóri NASA í yfirlýsingu í dag.
„Með þessari næstu ferð tryggjum við stöðu Bandaríkjanna sem forysturíkis á sviði geimferða og rannsókna á Mars og búumst við því að senda þangað menn fljótlega eftir árið 2030.“