Með því að senda mannað geimfar til Mars væri hægt að afla upplýsinga sem væru mikilvæg fyrir framtíð jarðarinnar. Þetta segir Charles Bolden, yfirmaður geimferðarstofunnar Bandaríkjanna.
Hann var meðal þeirra sem tóku þátt í ráðstefnunni Maður til Mars í Washington.