Svisslendingurinn André Borschberg hefur nú sett heimsmet í flugi sólarorkuknúinnar flugvélar, en hann hefur flogið stanslaust í um 109 klukkustundir. Borschberg flýgur sólarorkuknúnu flugvélinni Solar Impulse 2 yfir Kyrrahafið, en hann lagði af stað frá Nagoya í Japan á sunnudag og áætlað er að hann lendi í Honolulu á Havaí í dag.
Um er að ræða lengsta legginn í för vélarinnar í kringum jörðina, en Borschberg er einn um borð í vélinni. Hann hefur sagt frá upplifun sinni af fluginu á Twitter, en þar segist hann meðal annars hafa þurft að fljúga í erfiðum skilyrðum. Þá taki það mjög á að fljúga allan þennan tíma, en hann getur ekki sofið nema í um 15 mínútur í senn.
Aldrei fyrr hefur flugmaður verið jafnlengi á lofti í einum legg, en fyrra heimsmetið átti Steve Fossett sem flaug í 76 klukkustundir og 45 mínútur árið 2006. Þá hefur flugvél aldrei fyrr verið flogið yfir Kyrrahafið í einni lotu, en ríflega átta þúsund kílómetrar eru á milli áfangastaðanna tveggja, án möguleika til millilendingar.
Borschberg hefur þó fallhlíf og björgunarbát með í för ef allt fer á versta veg, en hann fór í gegnum stífan undirbúning í Norðursjó fyrr á árinu.
Áætlað er að flugið taki fimm sólarhringa í heild og því gert ráð fyrir að Borschberg lendi í Honolulu eftir um sjö klukkustundir.
Slæmt veður hefur tafið flug vélarinnar í tæpa tvo mánuði. Lagt var af stað frá Abu Dhabi hinn 9. mars sl. og áætlað er að hnattflugi vélarinnar ljúki í lok júlí eða byrjun ágúst á sama stað.
Flugleiðin er eftirfarandi: Abu Dhabi - Múskat í Óman - Ahmedabad í Indlandi - Mandalay í Myanmar - Chongqing í Kína - Nanjing í Kína - Honolulu á Havaí - Phoenix í Bandaríkjunum - óákveðinn áfangastaður í miðríkjum Bandaríkjanna (fer eftir veðri) - New York í Bandaríkjunum - óákveðinn áfangastaður í Suður-Evrópu eða Norður-Afríku - Abu Dhabi.
Feðgarnir Jón Björgvinsson, fréttaritari og ljósmyndari, og sonur hans, Daníel Jónsson rafmagnsverkfræðingur, taka þátt í ævintýrinu en ef það tekst verður flugvélin sú fyrsta sem flýgur í kringum hnöttinn einungis knúin af sólarorku.