Bandaríska geimferðastofnunin NASA hefur frestað skoti á ómönnuðu könnunargeimfari til sólarinnar, sem skjóta átti frá Kanaveralhöfða í Flórída í dag. Stefnt er að því að skjóta flauginni á loft á morgun.
Geimfarið nefnist Parker-sólarkanninn í höfuðið á sólarfræðingnum Eugene Parker. Lokaathugun fyrir skotið í dag leiddi til þess að ákveðið var að fresta skotinu um sólarhring. Risavaxin eldflaug, Delta-IV Heavy rocket, mun flytja farið út í geim, að því er fram kemur á vef BBC.
Áætlað er að geimfarið verði hið fyrsta sem fer um funheitan lofthjúp sólarinnar og „snertir sólina“ eins og geimrannsóknarstofnunin komst að orði. Förinni er heitið að hinni svokölluðu kórónu sólarinnar, sem er plasmahjúpur sem umlykur sólina og teygir sig milljónir kílómetra út í geiminn.
Farið mun fljúga um geiminn á um 69.2000 kílómetra hraða á klukkustund og ætti þar með að verða hraðskreiðasta manngerða far í sögunni til þessa.