Hugvit úr HÍ nýtt við flogaveiki

Sveinbjörn Gizurarson, prófessor.
Sveinbjörn Gizurarson, prófessor. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

Innöndunarlyf sem nýtist við bráðameðferð við flogaveiki, sem á uppruna sinn í rannsóknum við Háskóla Íslands, hefur verið tekið til flýtimeðferðar hjá bandaríska lyfjaeftirlitinu (United States Food and Drug Administration, FDA).

Þetta kemur fram í tilkynningu frá háskólanum.

Lyfið sem kallast Nayzilam er nefúði og er ætlað við bráðameðhöndlun við svokölluðum bráðaflogum eða raðflogum.

Rösklega 30 ár eru liðin síðan fyrstu rannsóknahóparnir fóru að reyna að lina krampa með nefúða en það er nú loksins að takast fyrir tilstuðlan íslensks hugvits.

Uppruna flogaveikilyfsins í formi nefúða má rekja til rannsókna og þróunar við lyfjafræðideild Háskóla Íslands undir stjórn Sveinbjarnar Gizurarsonar prófessors. 

Starf Sveinbjarnar hefur nú skilað þeim árangri að lyfjagjöf í formi nefúða lofar afar góðu en niðurstöður úr svokölluðum klínískum fasa hafa skilað eftirsóknarverðum árangri, að því er segir í tilkynningunni.

Tilraunalyfið er sagt skjótvirkt og afar auðvelt í notkun miðað við þau meðferðarúrræði sem nú eru í boði.

Tókst eftir 30 ára vinnu

„Það er ótrúlega gaman að sjá að þetta hafi tekist eftir yfir 30 ára rannsóknarvinnu,“ segir Sveinbjörn í tilkynningunni.

Hann bætir því við að erfitt hafi reynst að bíða eftir niðurstöðum úr lokaprófunum á fólki en þær tóku um fimm ár. „Það er einnig vissulega gaman að vera fyrstur með svona lyf á markað þegar svo margir hafa reynt að þróa bráðalyf eins og þetta, þar á meðal lyfjarisarnir.“

Nýja lyfið byggist á grunnrannsóknum sem reyna oft mjög á þolinmæði vísindamanna og samfélagsins. „Grunnrannsóknir skipta öllu máli fyrir nýsköpun,“ segir Sveinbjörn. „Án þeirra koma engar nýjungar á markað, engin ný lyf, engar lyfjameðferðir og fleira í þeim dúr.“

Hugverkaréttur á lyfinu Nayzilam var varinn með einkaleyfi snemma í rannsóknaferlinu sem hefur leitt til þess að bandarísku lyfjaþróunarfyrirtækin Proximagen og UCB hafa lagt út í verulega kostnaðarsamar en nauðsynlegar klínískar tilraunir með lyfið.

Nayzilam er fyrsta nefúðalyfið sem byggist á þessu einkaleyfi og bíður nú samþykkis FDA og leyfis til að verða sett á markað á árinu 2019. Lyfinu er ætlað að lina þjáningar milljóna manna um heim allan á næstu árum.

UCB hefur nú náð samningi við Proximagen um kaup á öllum réttindum þess síðarnefnda á lyfinu og er kaupverðið allt að 370 milljónir bandaríkjadala eða nærri 40 milljarðar íslenskra króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka