Miklir hitar sem hafa verið í Ástralíu undanfarið hafa leitt til dauða rúmlega 90 villtra hesta í óbyggðum í Mið-Ástralíu.
BBC segir landverði hafa fundið dauða og deyjandi hesta við uppþornað vatnsból í nágrenni Alice Springs í Northern Territories-fylkinu í norðanverðri Mið-Ástralíu. Voru það íbúar á svæðinu sem létu yfirvöld vita að ekkert hefði sést til hestanna undanfarið.
40 hestar voru þegar dauðir af völdum ofþornunar og hungurs þegar landverðirnir komu á staðinn og var ástand hinna metið það slæmt að ákveðið var að fella þá.
Verulegir hitar hafa verið í Ástralíu undanfarinn hálfa mánuðinn og hafa hitamet fallið víða. Í Adelaide mældist hitinn í dag 46,2° og er það mesti hiti sem nokkurn tímann hefur mælst þar, en fyrra met var frá árinu 1939.
Ralph Turner, íbúi í nágrenni vatnsbólsins, fór á staðinn eftir að hann fékk fréttirnar og tók myndir af því sem við blasti og birti á netinu. Hann lýsir ástandinu sem algjörum fjöldadauða. „Ég var eyðilagður. Ég hef aldrei séð neitt þessu líkt — allir þessir skrokkar.“
Annar heimamaður, Rohan Smyth, sagði í samtali við áströlsku ABC-sjónvarpsstöðina að venjulega væri vatn í vatnsbólinu og að hestarnir hefðu ekki haft annan stað að fara á.
Yfirvöld í fylkinu hafa þá greint frá því að til standi að aflífa 120 hesta, asna og kameldýr til viðbótar í nágrannasveitarfélögum sem séu illa haldin af ofþornun vegna hitanna.
Hitastigið í Alice Springs hefur verið yfir 42° í tæpar tvær vikur nú og er það 6 gráðum meira en venjulega mælist í janúar, að sögn áströlsku veðurstofunnar.
Fleiri dýrategundir hafa farið illa út úr hitunum og hafa fréttir m.a. borist af miklum leðurblökudauða í New South Wales. Þá hafa tæplega milljón fiskar fundist dauðir meðfram árbökkum í þeim fylkjum þar sem þurrkar hafa verið mestir.
„Loftslagsbreytingarnar eru virkilega farnar að gera vart við sig og við eigum von á að hættuástand eins og þetta muni skapast með sívaxandi tíðni,“ sagði David Ross hjá yfirvöldum í fylkinu. „Enginn er raunverulega undir þetta búinn og með bjargráðin til að bregðast við.“
Fyrr í þessum mánuði staðfestu áströlsk yfirvöld að meðalhiti árin 2017 og 2018 væri í þriðja og fjórða sæti yfir heitustu árin frá því skráningar hófust.