Þrátt fyrir að konur hafi reynst vera með alvarlegri þrengsli í ósæðarloku hjartans en karlar er árangur af lokuskiptaaðgerðum mjög svipaður hjá báðum kynjum og langtímalífslíkur að lokinni aðgerð sömuleiðis. Þetta eru niðurstöður rannsóknar vísindamanna og nemenda við Háskóla Íslands, sem greint er frá í nýjasta hefti Læknablaðsins.
Þrenging í ósæðarloku er næstalgengasti hjartasjúkdómurinn sem meðhöndlaður er með opinni skurðagerð á eftir kransæðaþrengslum. Þrengingin greinist yfirleitt eftir miðjan aldur og felst hefðbundin meðferð oftast í að skipta út lokunni fyrir lífræna gerviloku úr svíni eða kálfi. Hjá yngra fólki er þó oft notast við ólífræna loku úr hertu kolefni. Þetta felur í sér umfangmikla skurðaðgerð þar sem sjúklingurinn er tengdur við hjarta- og lungnavél og síðan er hjartað stöðvað í einn til tvo tíma.
Árangur opinna hjartaaðgerða er almennt heldur lakari hjá konum en körlum, m.a. vegna þess að þær eru oft eldri þegar kemur að aðgerð. Í rannsókninni sem um ræðir var hins vegar í fyrsta skipti kannað hver árangur ósæðalokuskiptaaðgerða er hjá konum hérlendis og hann borinn saman við árangur af sams konar aðgerðum hjá körlum.
Rannsóknin tók til 428 sjúklinga sem gengust undir ósæðarlokuskipti á Landspítalanum árabilinu 2002-2013. Voru konur voru 35% sjúklinga og var meðalaldur þeirra 72 ár, en 70 ár hjá körlum. Alvarleiki lokuþrengsla var metinn með hjartaómskoðunum og fylgikvillar á fyrstu 30 dögunum eftir aðgerð skráðir. Auk þess var kannað hversu margir sjúklingar lifðu fyrstu 30 dagana eftir aðgerð og svo hversu margir væru á lífi fimm árum síðar.
Í ljós kom að lokuþrengsl þeirra kvenna sem tóku þátt í aðgerðinni voru almennt alvarlegri en karlanna. Engu að síður var árangur af aðgerðunum svipaður hjá báðum kynjum. Átti þetta við um bæði snemmkomna fylgikvilla og 30 daga dánartíðnina. Eins reyndist langtímalifun kvenna sambærileg og hjá körlum, en í kringum 80% sjúklinganna voru á lífi fimm árum eftir aðgerð sem þykir ágætur árangur fyrir sjúklinga á þessum aldri.
Að konur séu einungis þriðjungur sjúklinganna og að meðalaldur þeirra við greiningu á alvarlegum lokuþrengslum sé tveimur árum hærri en hjá körlum vekur engu að síður upp spurningar um það hvort að töf verði á greiningu sjúkdómsins hjá konum og hvort að þeim sé síður boðið upp á lokuskiptaaðgerð.
Segir í fréttinni að rannsóknir erlendis hafi leitt í ljós svipaðar niðurstöður, bæði fyrir lokuskipta- og kransæðahjáveituaðgerðir, og er þá skýringin oftast talin liggja í ódæmigerðari einkennum kvenna sem geti tafið greiningu og meðferð.
Á síðustu árum hefur ný aðgerð við ósæðarlokuþrengslum verið að ryðja sér til rúms, m.a. hér á landi. Kallast hún TAVI-aðgerð en þá er lífrænni ósæðarloku komið fyrir í gegnum slagæð í nára. Sleppur sjúklingurinn þá við bringubeinsskurð og getur oftast útskrifast nokkrum dögum eftir aðgerð, í stað 7-10 daga eftir opna aðgerð. Er nýja aðgerðin því talin henta vel öldruðum og öðrum einstaklingum þar sem áhætta við opna hjartaaðgerð er talin mjög mikil.