Mörg hundruð þúsund manns söfnuðust saman við La Silla-stjörnuskoðunarstöðina í norðurhluta Chile í nótt til að fylgjast með almyrkva á sólu.
Aðstæður voru með besta móti, heiðskírt og lítil sem engin sjónmengun svo niðurstaðan varð sannkölluð paradís fyrir vísindamenn og eldheita stjörnuskoðara sem sumir hverjir felldu tár.
„Þetta var ótrúlegt, þetta var undursamlegt, ég felldi tár, mörg tár,“ segir einn stjörnuskoðarinn í samtali við AFP-fréttastofuna.
Sólmyrkvi, eða almyrkvi á sólu, verður þegar tunglið gengur milli sólar og jarðar svo tunglið myrkvar sólina að hluta til eða í heild frá jörðu séð. Almyrkvi verður aðeins þegar sólin, tunglið og jörðin eru í beinni línu. Almyrkvinn í nótt varði í um tvær og hálfa mínútu.
Almyrkvi á sólu varð síðast á Íslandi í mars 2015 en Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness hefur þegar hafið undirbúning vegna almyrkva á sólu sem verður 12. ágúst 2026, eða eftir tæpan áratug.
Nánari upplýsingar um sólmyrkva má nálgast á Stjörnufræðivefnum.