Ný rannsókn sýnir sterk tengsl milli notkunar tíðahvarfahormóna og brjóstakrabbameins em niðurstöður rannsóknarinnar eru birtar í vísindaritinu Lancet í dag.
Rannsókninni er stýrt af hópi við Oxford-háskóla. Hún er samantekt úr miklum fjölda rannsókna víðs vegar að úr heiminum þar sem byggt er á samtals yfir 100.000 brjóstakrabbameinstilfellum. Niðurstöðurnar staðfesta að það er sterkt samband milli notkunar tíðahvarfahormóna og brjóstakrabbameins. Rannsóknin sýndi líka að þeim mun lengur sem konur nota tíðahvarfahormóna því meiri verður hættan á brjóstakrabbameini. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Krabbameinsfélaginu.
Þannig voru konur sem tóku hormónablöndur (estrógen og prógesterón) í 1-4 ár (meðaltal 3 ár) í 60% aukinni áhættu. Þær sem tóku blöndurnar í 5-14 ár voru í tvöfaldri áhættu miðað við konur sem ekki höfðu tekið tíðahvarfahormóna. Notkun í aðeins eitt ár eða minna sýndi enga aukna áhættu á brjóstakrabbameini og lægri áhætta tengdist töku estrógena eingöngu, heldur en lyfja sem gerð voru úr hormónablöndum.
„Þetta kemur okkur ekki á óvart, því niðurstöður okkar sem birtust í erlendu vísindariti fyrir tveimur árum sýna svipuð áhrif og þessi stóra rannsókn gerir,“ segir Laufey Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsskrár Krabbameinsfélagsins, en gögn frá Krabbameinsfélaginu eru með í fjölþjóðlegu rannsókninni.
Allar gerðir tíðahvarfahormóna nema estrógen-skeiðatöflur tengdust aukinni áhættu á brjóstakrabbameini. Áhættan var ekki eins há ef hormónatakan hófst fyrst við 60 ára aldur.
Niðurstöðurnar benda til þess að notkun á tíðahvarfahormónum hafi valdið einni milljón brjóstakrabbameina af þeim 20 milljónum sem hafa greinst í heiminum frá árinu 1990. Notkun hormónanna hófst um 1970 og var lítil í byrjun en jókst upp úr 1980. Gífurleg aukning varð svo milli 1990 og 2000. Vegna þess að rannsóknir sýndu fram á þessi neikvæðu áhrif lyfjanna fór aftur að draga úr notkun upp úr árinu 2000. Í dag er áætlað að um 12 milljónir kvenna noti tíðahvarfahormóna í heiminum.
Laufey segir að höfundar áætli að af hverjum 50 til 70 konum sem byrja að nota hormónablöndur um 50 ára aldurinn og nota lyfin í 5 ár, fái ein kona brjóstakrabbamein vegna hormónatökunnar á aldrinum 50-69 ára. Búast má við um það bil tvöfalt fleiri tilfellum ef tíðarhvarfahormónarnir eru teknir samfellt í 10 ár.