Ísland er í fyrsta sæti í nýtingu á ljósleiðara fyrir heimili í Evrópu samkvæmt úttekt Fibre to the Home Council Europe. Samkvæmt úttektinni nýta 65,9% íslenskra heimila sér ljósleiðara. Í öðru sæti er Hvíta Rússland með 62,8% nýtingu og svo Spánn með 54,3% nýtingu.
Frá þessu greinir Gagnaveita Reykjavíkur.
„Við höfum öll séð kosti ljósleiðarans núna á þessum tímum Covid-19 og mikilvægi öflugra og traustra nettenginga. Ísland er nú í fyrsta sæti hvað varðar hlutfall ljósleiðaratenginga í notkun í allri Evrópu. Þessi öfundsverða staða er Íslandi styrkur í samkeppni þjóða og skiptir lykilmáli fyrir þróunarmöguleika atvinnulífs og byggðar í framtíðinni,“ segir Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur, í tilkynningu.
Fram kemur, að yfir 120.000 heimili á Íslandi séu nú tengd ljósleiðara alla leið eða sem nemi 82% allra heimila. Í dag nýti 65,9% heimila tenginguna, sem sé hæsta hlutfall í Evrópu. Enn á eftir að tengja um 20.000 heimili á Íslandi.
„Sé eingöngu miðað við áætlanir Gagnaveitu Reykjavíkur um uppbyggingu ljósleiðara verða um 90% heimila tengd árið 2023. Gagnaveita Reykjavíkur, sem á og rekur Ljósleiðarann, vinnur þannig ötullega að því markmiði stjórnvalda að Ísland verði að fullu ljósleiðaravætt sem fyrst,“ segir í tilkynningunni.