Forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, ætlar að skrifa undir forsetatilskipun sem beinist að samfélagsmiðlum samkvæmt upplýsingum frá forsetaembættinu. Þetta kemur í kjölfar hótana forsetans um að loka samfélagsmiðlum eftir að Twitter merkti tvö tíst hans sem misvísandi. Sakar hann miðlana um að reyna að þagga niður í íhaldsmönnum.
Ekki hefur verið upplýst hvað felst nákvæmlega í tilskipuninni en von er á að Trump skrifi undir hana síðar í dag að því er segir í frétt BBC.
Áður en Trump fór frá Washington til Flórída til að fylgjast með geimskoti, sem var síðan frestað vegna slæms veðurs, sakaði Trump Twitter enn á ný og aðra samfélagsmiðla um hlutdrægni án þess að leggja fram nokkur gögn því til sönnunar.
Trump skrifaði gagnrýni sína á Twitter og lokafærslan er sú að samfélagsmiðlar séu endanlega gengnir af göflunum.
Forstjóri Twitter, Jack Dorsey, svaraði gagnrýni varðandi staðreyndavakt miðilsins og stefnu Twitter í þessum málaflokki í nokrum færslum á Twitter. Meðal annars að þau muni áfram benda á rangar og misvísandi upplýsgar um kosningar í heiminum.
Á þriðjudag skrifaði Trump svipaða færslu á Facebook um kjörseðlana og þar var færslan ekki merkt af samfélagsmiðlinum sem misvísandi.
Í viðtali við Fox News í gær sagði forstjóri Facebook, Mark Zuckerberg, að þetta væri ekki hlutverk samfélagsmiðla en Fox mun síðar í dag birta viðtalið við Zuckerberg í heild.
Undanfarin ár hefur Twitter hert reglur um efni sem þar birtist á sama tíma hefur miðillinn mætt gagnrýndi um að láta upplýsingaóreiðu og falsaðganga óáreitta.
Einhver af stærstu tæknifyrirtækjum Bandaríkjanna hafa einnig verið sökuð um brot á samkeppnislögum og brot á persónuverndarrétti notenda. Apple, Google, Facebook og Amazon eru til rannsóknar hjá bæði alríkis- og ríkissaksóknurum sem og bandarískrar þingnefndar.