Ný flokkunarlína fyrir úrgang var tekin í notkun í gær í móttökustöð Sorpu í Gufunesi. Hefjast þar með prófanir á flokkun úrgangs frá heimilum.
Nýja línan er í tilkynningu Sorpu sögð veigamikið skref í aðdraganda þess að hafin verði tilraunavinnsla í nýrri gas- og jarðgerðarstöð í Álfsnesi.
Stefnt er að því að tilraunavinnsla hefjist í þeirri stöð, sem bera mun nafnið Gaja, í júlímánuði.