Veronika Steinunn Magnúsdóttir
Bóluefni frá bandaríska framleiðandanum Moderna gegn Covid-19 hefur nærri 95% virkni samkvæmt grunnprófunum, að því er framleiðandinn hefur greint frá. Hyggst framleiðandinn sækja um tilskilin leyfi til fjöldaframleiðslu á næstu vikum.
Mörgum spurningum er enn ósvarað þótt útlitið sé gott enn sem komið er. Um 30 þúsund manns tóku þátt í prófunum á bóluefninu; helmingur þeirra fékk tvo skammta af bóluefninu með fjögurra vikna millibili en hinn helmingurinn fékk lyfleysur.
Niðurstöður um virknina eru byggðar á fyrstu 95 sem sýndu einkenni Covid-19 en einungis fimm þeirra sem fengu bóluefnið greindust með Covid-19 en 90 þeirra sem fengu lyfleysur greindust með sjúkdóminn. Fékkst út frá því að virknin hafi verið 94,5%. BBC greinir frá.
NEW: Moderna announces vaccine for COVID up to 94.5% effective in early results. HHS Secretary Alex Azar discusses the next steps for vaccine distribution. https://t.co/ZHzDtnGVYI pic.twitter.com/hq26IOD40C
— Good Morning America (@GMA) November 16, 2020