„Það má ekkert fara úrskeiðis í þessu og þetta er alveg ótrúlega flókið raunverulega sem er að gerast þarna,“ segir Ari Kristinn Jónsson, rektor HR og fyrrum starfsmaður NASA, um lendingarferli Perserverance á Mars í kvöld. Nýrri tækni er beitt við lendinguna sem hefur ekki verið notuð áður í sambærilegum ferðum en Perserverance verður fimmti könnuðurinn á hjólum sem NASA kemur á Mars ef allt gengur upp.
Í myndskeiðinu útskýrir Ari Kristinn stuttlega hvernig lendingin fer fram en hann hefur sjálfur reynslu af vinnu við könnun Mars líkt og kom fram í umfjöllun hér á mbl.is á dögunum.
Perserverance k Það er töluverð áskorun að lenda slíku tæki á rauðu plánetunni en í síðustu ferðum hafa uppplásnir loftpúðar tekið höggið af farminum við lendinguna.
Í þetta skiptið er grind knúin eldflaugum sem lætur könnuðinn síga niður á yfirborðið en Ari Kristinn viðurkennir að töluverðar efasemdir hafi verið innan bandarísku geimvísindastofnunarinnar þegar hugmyndin var fyrst viðruð.
Hægt verður að fylgjast með atburðarásinni á níunda tímanum í kvöld í beinu streymi frá NASA stjórnstöðinni í Jet Propulsion Laboratory í Kaliforníu og mbl.is mun að sjálfsögðu fygjast vel með og segja frá gangi mála. Þá verður að taka í myndina að upplýsingarnar frá Mars taka um 11 mínútur og 22 sekúndur að berast til jarðar.