Franska samkeppniseftirlitið hefur sektað bandaríska tæknifyrirtækið Google um 220 milljónir evra, rúma 32 milljarða króna, fyrir að hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína á auglýsingamarkaði á netinu.
Sektin er hluti af samkomulagi sem gert var í kjölfar ásakana þriggja fjölmiðlafyrirtækja, News Corp (útgáfufyrirtækis Murdoch-fjölskyldunnar), franska dagblaðsins Le Figaro og belgísku útgáfunnar Groupe Rossel, um að Google hefði beitt einokunartilburðum þegar kom að sölu á auglýsingum á vefjum þeirra og smáforritum.
Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu að Google hefði veitt eigin auglýsingaþjónustu forskot þegar kom að auglýsingum og sýnileika þeirra.