Rússneska varnarmálaráðuneytið viðurkennir að það hafi sprengt einn gervihnött sinn í gær með flugskeyti. Gervihnetti, sem hafði verið á braut um jörðu frá árinu 1982, var eytt.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Rússum, sem fjallað er um í frétt AFP.
Bill Nelson, forstjóri bandarísku geimferðarstofnunarinnar NASA, sagðist í gær vera æfur yfir aðgerðum Rússa. Geimfarar urðu að undirbúa skyndiflótta úr alþjóðlegu geimstöðunni en óttast var að geimrusl rækist á hana.
Geimruslið er afar smátt, jafnvel málningarflyksur eða steinbrot, og því erfitt að koma auga á það með tækni frá jörðu, en það getur valdið gríðarlegum skaða ef til árekstrar kemur enda feykist það um af miklum hraða.
Í yfirlýsingu Rússa kemur hins vegar fram að þar á bæ hafi menn fylgt áætlunum og þvertóku fyrir að einhver hætta hefði fylgt verkinu.