Japanska auðkýfingnum Yusaku Maezawa hefur verið skotið út í geim en áfangastaðurinn er Alþjóðlega geimstöðin. Maezawa, sem efnaðist í gegnum netverslanir á borð við Zozotown, bætist þar með í hóp milljarðamæringa sem hafa komist út í geim.
Það var rússnesk eldflaug sem flutti Maezawa út í geim, en skotið átti sér stað í Baikonur í Kasakstan í gær.
Auðkýfingurinn hyggst ljúka 100 verkefnum í geimnum, þar á meðal að leika golf.
Hann var eitt sinn trommuleikari í pönkhljómsveit og á síðasta ári var hann með sjónvarpsþátt í bígerð þar sem hann var í leit að nýrri kærustu sem átti að fara með honum út í geim, en hann hætti síðan við þau áform.
Maezawa hyggst vera 12 daga í geimstöðinni og hann verður fyrsti geimferðamaðurinn sem sækir stöðina heim á undanförnum árum. Maezawa stefnir svo á að fara til tunglsins árið 2023.
Með Maezawa í för var rússneski geimfarinn Alexader Misurkin og framleiðandinn Yozo Hirano sem tekur upp ferðalagið og sér um að deila því á YouTube-rás Maezawa.
Hann sagði fyrir skemmstu að þetta að geimferðin væri draumur sem væri að rætast.
Viðskiptatímaritið Forbes segir að Maezawa sé í 30. sæti yfir ríkustu einstaklinga Japans. Auðæfi hans eru metin á um 1,9 milljarða dala, eða sem samsvarar um 250 milljörðum kr.