Tæknirisinn Apple greindi frá því í gær að hann ætli sér að hætta framleiðslu á tónlistartækinu iPod. Einungis ein gerð af tækinu er enn í framleiðslu og fer hver að verða síðastur að tryggja sér eintak.
Þegar Apple tilkynnti um tímamótin tók fyrirtækið fram að viðskiptavinir fyrirtækisins myndu geta haldið áfram að hlusta á tónlist í öðrum tækjum þess, til dæmis í hinum sívinsæla snjallsíma iPhone.
„Tónlist hefur alltaf verið mikilvægur hluti af starfsemi okkar hjá Apple og að koma henni til milljóna notenda á þann hátt sem iPod gerði hafði áhrif á meira en bara tónlistariðnaðinn – hann breytti því líka hvernig fólk uppgötvar tónlist og deilir henni,“ sagði Greg Joswiak, varaforseti markaðssetningar Apple á heimsvísu, í yfirlýsingu.
„Í dag lifir andi iPod áfram,“ bætti Joswiak við.
iPodinn var fyrst kynntu af Steve Jobs, stofnanda og þáverandi forstjóra fyrirtækisins, árið 2001. Tækið hjálpaði fyrirtækinu að komast á skrið.