Nýjar myndir af plánetunni Júpíter frá James Webb-geimsjónaukanum hafa verið birtar. Myndirnar voru teknar í júlí af þessari stærstu plánetu sólkerfisins.
Þar sjást segulljós, miklir stormar og hringir í kringum Júpíter í smáatriðum sem stjörnufræðingar segja „ótrúleg“, að sögn BBC.
„Við höfum aldrei séð Júpíter svona. Þetta er allt saman afar ótrúlegt,“ sagði stjörnufræðingurinn Imke de Pater sem starfar hjá Kaliforníu-háskóla.
„Við bjuggumst ekki því að þetta yrði svona gott, satt best að segja, sagði hann um myndirnar.
Innrauðar ljósmyndir af plánetunni voru litaðar til að sjónarspilið sæist betur.