Hætt hefur verið við eldflaugaskot Artemis frá Kennedy-höfða sem átti að hefjast klukkan 12.33 í dag.
Ástæðan fyrir því er vélarbilun. Hugsanlegt er að flaugin fari í staðinn í loftið 2. september.
Geimskotið er liður í áætlun um að flytja fólk á nýjan leik til tunglsins og seinna meir til plánetunnar Mars.