Flaug bandarísku geimferðastofnuninnar NASA var skotið á loft í morgun rétt fyrir klukkan sjö, og markar það upphaf Artemis-áætlunarinnar til tunglsins.
Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem NASA reynir við skotið en í byrjun september þurfti að hætta við vegna bilunar í einni af hliðareldflaugum geimfarsins sem aðstoða við að lyfta því frá jörðu í upphafi skotsins. Þá var einnig hætt við skotið undir lok ágúst vegna vélarbilunar.
Geimskotið, sem virðist hafa gengið vel í morgun, er liður í áætlun um að senda mannað far á sporbaug um tunglið.
Á toppi flaugarinnar er Orion-geimfarið sem mun losna frá þegar flaugin nær út í geim. Orion-geimfarið er hannað til þess að rúma mannfólk en í þessari ferð eru þó einungis gínur með í för.
Hér fyrir neðan má sjá þegar flauginni var skotið á loft og einnig beint streymi frá NASA.