Elon Musk, eigandi Twitter, hefur ákveðið að fresta nýrri áskriftarþjónustu á miðlinum sem felst í því að notendur geta greitt átta dali á mánuði til þess að fá bláa sönnunarstimpilinn við hlið nafns síns.
Þjónustan kallast Twitter Blue en Musk sagði í tísti að hann myndi fresta áskriftarþjónustunni þar til hægt sé að tryggja að um raunverulegan notanda sé að ræða.
Þá sagði hann að sönnunarstimpillinn yrði líklega í mismunandi litum eftir því hvort notandinn er einstaklingur eða stofnun.
Musk greindi ekki frá hvenær Twitter Blue yrði tekið til notkunar.