Forritið sem mun gera starfið þitt úrelt

Ljóst þykir að forritið ChatGPT sem var stofnað af OpenAI …
Ljóst þykir að forritið ChatGPT sem var stofnað af OpenAI muni koma til með að valda straumhvörfum innan samfélagsins. AFP/Lionel Bonaventure

„Stjórn­völd hafa hafið veg­ferðina í að skilja þetta. Þetta mun hafa mjög mik­il áhrif á at­vinnu­lífið og gríðarleg áhrif á mennta­kerfið. Krakk­arn­ir eru löngu bún­ir að fatta þetta áður en að for­eldr­arn­ir gera það, eins og alltaf.“

Þetta seg­ir Björg­vin Ingi Ólafs­son, meðeig­andi hjá Deloitte og stjórn­ar­maður í Al­mannarómi, miðstöð um mál­tækni, en hann tel­ur að mögu­lega muni gervi­greind­ar­for­ritið Chat­G­PT vera orðið álíka gott í ís­lensku og það er í ensku eft­ir þrjá til sex mánuði.

Björg­vin set­ur þó þann varnagla á spá sína að í tækni­heim­in­um er oft ómögu­legt að spá hversu hratt eða hægt ákveðnar breyt­ing­ar eiga sér stað.

„Það er mjög erfitt að spá um svona. Ég er meira svona að spá í þetta en að spá um þetta. Það er haft eft­ir Bill Gates að við of­met­um alltaf breyt­ing­ar á tveim­ur árum og van­met­um þær á tíu.“

Nán­ari um­fjöll­un er að finna í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert