Nokkur ráðuneyti skoða nú athugasemdir frá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) sem varða upplýsinga- og þjónustumiðstöðina Ísland.is. Stjórnvöld ætlast til þess að veita svör á næstu mánuðum.
Í vikunni var greint frá því að ESA hafi sent háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu bréf þess efnis að Ísland.is uppfylli ekki þær kröfur sem Evrópska efnahagssvæðisins setur fyrir um að gegna hlutverki upplýsinga- og þjónustumiðstöðvar hins opinbera.
„Íslensk stjórnvöld leggja sig alltaf fram við að koma til móts við ábendingar frá ESA“ segir Ásdís Halla Bragadóttir, ráðuneytisstjóri í háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu, í samtali við mbl.is.
„Þetta er komið í skoðun hjá nokkrum ráðuneytum sem hafa aðkomu að þessu og verður í skoðun núna næstu daga og ESA mun fá svar innan tveggja mánaða.“ segir Ásdís en ESA gaf íslenskum stjórnvöldum tveggja mánaða fyrirvara áður en lengra yrði gengið í málunum.
Hún segir að málið snerti fleiri ráðuneyti, fjármálaráðuneytið til að mynda en og einnig sé til skoðunar hvort menningar- og viðskiptaráðuneyti komi að málinu. „Þetta er klárlega ekki bara á okkar vettvangi.“
„Tveir sérfræðingar sem að koma að þessu í ólíkum ráðuneytum eru nú að bera saman bækur sínar og meta viðbrögðin. Málið er í raun og veru bara í því að greina þetta, sjá hvar það á helst heima.“ segir hún. „Þetta kallar á samráð nokkurra ráðuneyta.“
Hún segir að það hún geti lítið annað sagt eins og staðan er núna annað en en að það verði brugðist við ábendingum ESA innan tveggja mánaða.