Gervihnettir gætu tryggt net á hálendinu

Gervitungl gætu tryggt net á hálendinu.
Gervitungl gætu tryggt net á hálendinu. NASA/Unsplashed

Íslands gæti tekið þátt í áætlun Evrópusambandsins um öryggisfjarskiptakerfi um gervihnetti fyrir ríkisstjórn. Þetta kynnti Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, í dag.

Framkvæmdastjórn ESB hefur samþykkt að hefja samningaviðræður við Ísland um þátttöku landsins í áætluninni, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Einkaaðilar gætu nýtt hnettina

Markmið áætlunarinnar, sem á ensku kallast „Secure Connectivity Programme“, er að tryggja til frambúðar aðgengi að hraðvirkum, öruggum og hagkvæmum fjarskiptum um gervihnetti á heimsvísu.

Ætlast er til þess að áætlunin styðji við mikilvæga fjarskiptainnviði innan ESB og tryggi aðgengi löggæslu og viðbragðsaðila að öruggum fjarskiptum á neyðarstundu.

Áformin eiga jafnframt að fela í sér uppbyggingu á kerfi sem einkaaðila gætu nýtt til að bjóða hraðvirka netþjónustu um alla Evrópu, þ.m.t. á dreifbýlum svæðum. 

Öryggisnet ef sæstrengurinn skyldi rofna

Í tilkynningu stjórnvalda eru taldir upp hagsmunir Íslands af þátttöku. Þeir séu m.a. að hafa rödd við þróun og uppbyggingu kerfisins með það að markmiði að þjónustan verði til staðar fyrir Ísland og að tryggja aðgang að öruggu og lokuðu fjarskiptakerfi fyrir opinbera löggæslu-, neyðar- og viðbragðsaðila sem væru á forræði opinberra aðila – mögulega einnig í öryggis- og landvarnarskyni.

Aðrir hagsmunir Íslands snúi að því að hafa aðgang að netþjónustu fyrir mikilvæga samfélagsinnviði ef landið yrði fyrir alvarlegri netárás eða að samband um sæstrengi myndi af einhverjum ástæðum rofna.

Auk þess gæti átælunin tryggt íbúum á dreifbýlustu svæðum landsins aðgang að netþjónustu eða þeim sem þurfa aðgang á hálendinu.

Þá segir einnig að þátttaka í téðri gervihnattaáætlun gæti greitt fyrir þátttöku íslenskra fyrirtækja og stofnanna að þróun, uppbyggingu og rekstri kerfisins.

Á grundvelli ESB eða EES?

Lagt er til að Ísland hefji viðræður um hugsanlega aðild að áætluninni undir forystu háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins, sem fer með netöryggis- og fjarskiptamál, í samstarfi við innviðaráðuneytið og utanríkisráðuneytið auka annarra ráðuneyta og EFTA-skrifstofunnar í Brussel.

Þá segir að það sé til skoðunar er hvort þátttaka Íslands verði á grundvelli tvíhliða samkomulags við ESB eða í gegnum EES-samninginn, segir að lokum í tilkynningunni.

Banda­ríska geim­tæknifyr­ir­tækið SpaceX hefur að undanförnu boðið upp á netþjón­ustu í gegnum Gervihnetti að undanförnu. Nefnist verkefnið Starlink og er í boði á Íslandi, auk annarra landa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert