Syndis ræður til sín sænskan hakkara

David Jacoby er í grunninn hakkari og hefur því djúpa …
David Jacoby er í grunninn hakkari og hefur því djúpa þekkingu á netárásum. Ljósmynd/Aðsend

Netöryggisfyrirtækið Syndis hefur ráðið sænska hakkarann David Jacoby til sín. Í tilkynningu frá Syndis segir að Jacoby sé einn reynslumesti sérfræðingur Svía í netöryggi.

„Ráðning hans er mikilvæg viðbót við öflugt teymi Syndis og styrkir fyrirtækið í sókn á alþjóðamarkað,“ segir í tilkynningunni.

Fram kemur að Jacoby hafi yfir 25 ára reynslu í netöryggismálum. Ferill hans spanni fjölbreytt hlutverk hjá þekktum fyrirtækjum. Hann hafi meðal annar gegnt lykilhlutverkum hjá fyrirtækjunum Kaspersky Lab, TrueSec AB og Outpost24. 

„David er þekktur í Svíþjóð en nálgun Davids á netöryggi hefur m.a. verið sýnd í sænska sjónvarpsþættinum HACKAD. Þar voru raunverulegar árásir framkvæmdar í beinni útsendingu. Einnig er David vel þekktur fyrirlesari og tekur reglulega þátt í ráðstefnum um allan heim. Undanfarið hefur hann leitt sitt eigið netöryggisfyrirtæki, boðið upp á ráðgjöf og þróað háþróaðar öryggislausnir og áætlanir, sem sýnir áhuga og áherslu hans á nýsköpun.

David er í grunninn hakkari og hefur því djúpa þekkingu á netárásum, hvernig þær fara fram og hvernig best er að verjast þeim. Stefna Syndis byggir á að skilningur á sóknarleik sé nauðsyn til að tryggja góða vörn,“ segir í tilkynningunni.

Anton Már Egilsson, forstjóri Syndis, býður David Jakoby velkominn til …
Anton Már Egilsson, forstjóri Syndis, býður David Jakoby velkominn til starfa. Ljósmynd/Aðsend

Reynsla Jacoby ómetanleg

Haft er eftir Jacoby í tilkynningunni að hann sé spenntur að ganga til liðs við Syndis. 

„Ég er gríðarlega spenntur að ganga til liðs við Syndis, en þegar kemur að hugmyndafræði og sýn þá deilum við þeirri sömu skoðun um að gera Internetið að öruggari stað fyrir alla.  Netöryggi á ekki að vera munaðarvara heldur aðgengileg þjónusta fyrir alla, því náum ekki bara með hagkvæmum og skilvirkum lausnum heldur líka með því að virkja fólk með okkur og auka þekkingu allra. Teymið hjá Syndis samanstendur af gríðarlega hæfu fólki bæði þegar kemur að sókn og vörn í netöryggi, samsetning sem hefur sýnt sig að skilar góðum árangri við að auka þroska viðskiptavinarins. Ég hef fylgst með Syndis úr fjarlægð í langan tíma en fæ nú loks að vinna með þessu öfluga félagi og hafa áhrif á þessum spennandi tímum,“ er haft eftir Jacoby.

Þá er haft eftir forstjóra Syndis að reynsla Jacoby sé ómetanleg fyrir fyrirtækið.

„Þessi víðtæka reynsla Davids verður ómetanleg þegar við höldum áfram að vaxa á bæði sænskum og alþjóðlegum vettvangi. Sérfræðiþekking hans mun ekki aðeins auka vöru- og þjónustuframboð okkar, heldur einnig styrkja Syndis með enn breiðari og dýpri þekkingu. Við trúum því að reynsla hans og leiðtogahæfileikar muni auka enn okkar hraða vöxt og við gætum ekki verið ánægðari með að fá David í okkar hóp. Við hlökkum til að nýta sérfræðiþekkingu hans og framtíðarsýn til að styrkja stöðu okkar á nýjum mörkuðum,“ er haft eftir Antoni Má Egilssyni, forstjóra Syndis, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert