Fyrstu fréttirnar úr Þingvallavatni eru góðar miðað við það sem við heyrum frá veiðimönnum sem eru við veiðar í dag.
Við höfum frétt af einum sem fékk tvo urriða í morgun, 14 punda og 18 punda. Báðir voru þeir teknir á flugu og sleppt aftur að viðureign lokinni. Veiðimaðurinn sá vildi ekki gefa upp staðsetninguna sína í fjölmiðlum en sagði þó að hann væri ekki í Þjóðgarði eða Þorsteinsvík heldur í almenningi þar sem fáir legðu leið sína. Við vonumst eftir myndum af þessum stórfiskum sem allra fyrst.
Í þjóðgarðinum eru nokkrir góðkunningjar okkar og þeir hafa tekið eina eða tvær bleikjur hver en annars eru fáir eða nokkur í einhverri mokveiði enda á engin von á því 1. maí. Besta veiðin í vatninu hefur gjarnan verið frá miðjum maí fram í miðjan júní en það getur breytt miklu ef tíðarfarið er gott.
Við hvetjum ykkur til að senda okkur veiðimyndir og frásagnir af ykkar veiðitúrum því við drögum einn vinningahafa á viku sem fær glæsilegt flugubox frá Vesturröst fyrir innsendu fréttina. Sendið okkur póst á veidi@mbl.is
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |