Vilja óháða rannsókn á fiskeldi á Vestfjörðum

Samanburður. Villtur lax uppi. Eldislax niðri
Samanburður. Villtur lax uppi. Eldislax niðri Sumarliði Óskarsson

Orri Vigfússon hefur, fyrir hönd Verndarsjóð villtra laxa (

NASF

), sent Sigurði Inga Jóhannssyni umhverfis- og auðlindaráðherra, auk umhverfis- og sjávarútvegsnefndar, Alþingis, bréf í kjölfar þeirra frétta að norskur eldislax hefði sloppið úr eldiskvíum í Patreksfirði og Arnarfirði og staðfest  er að hann sé byrjaður að ganga upp í ár í nágrenninu.

Bréfið hljóðar svo: „

Undirritaður fyrir hönd NASF verndarsjóðs villtra laxastofna óskar þess að tafarlaust verði gerð óháð rannsókn á því fiskeldi sem nú fer fram á Vestfjörðum. Í sumar bárust fréttir fyrst frá íbúum á staðnum um að eldisfiskur væri byrjaður að veiðast í sjó, árósum og ám vestra - og að hann væri að búa sig undir að hrygna. Síðan hafa Fiskistofa og Veiðimálastofnun staðfest með afgerandi hætti að þarna er á ferðinni lax sem sloppið hefur úr eldiskvíum. Upplýsingar og skýringar frá fiskeldisfyrirtækjunum sjálfum á því hvernig þetta gerðist eru vægast sagt ótrúverðugar.

Reynsla annarra þjóða sýnir að umtalsvert magn laxa sleppur alltaf úr öllum sjókvíum. Þrátt fyrir mikið og kostnaðarsamt eftirlit hins opinbera og einlæga viðleitni rekstraraðila næst aldrei að koma í veg fyrir slíkt, hvað þá að fanga aftur nema brotabrot af þeim laxi sem sleppur. Því er varhugavert að trúa upplýsingum laxeldisfyrirtækjanna um að ekki hafi sloppið út nema um 200 laxar. Nú þegar er langt komið með að veiða 200 laxa við og í nálægum ám og að sögn heimamanna sjást ennþá laxatorfur í sjónum. Það eru því nægar vísbendingar um að umhverfisskaðinn hlýtur að hafa verið miklu meiri en fram hefur komið.   Veiðiréttareigendur, eigendur sjávarjarða og stangaveiðimenn eru logandi hræddir við að norskur eldislax blandist villtum laxastofnum hér á landi og einnig að eldislaxinn geti borið með sér bakteríu-, veiru- og sníkjudýrasýkingar. Ástandið fyrir vestan sýnir að sá ótti er réttmætur og við teljum að kvíarnar í Patreksfirði og Arnarfirði séu tifandi tímasprengjur að þessu leyti. Hraðar breytingar á vistkerfinu í hafinu umhverfis Ísland og lítil laxagengd í ár á Vesturlandi staðfestir að ekki er hægt að taka neina áhættu í umgengni við þá verðmætu, heilbrigðu og náttúrulegu auðlind sem villti laxinn er.   Við leggjum til að án tafar verði farið yfir alla vinnu- og eftirlitsferla í kringum laxeldið, gerð verði PCR (polymerase chain reaction) greining á laxinum í kvíunum til að kanna mögulega veirusýkingu og almennt heilbrigði hans rannsakað til að meta megi alla áhættuþætti þessa laxeldis, m. a. mengandi úrgang og stöðu laxalúsarinnar sem nær að jafnaði hámarki síðsumars, í ágúst og september, og getur verið mikill skaðvaldur í umhverfinu. Í Noregi, á Írlandi og í Kanada hafa fiskeldismenn margoft verið staðnir að því að gefa yfirvöldum rangar og villandi eða ónógar upplýsingar um ástandið í og við eldiskvíarnar, sjúkdóma, mengun og slysasleppingar. Við viljum tryggja að slíkur blekkingaleikur verði ekki í boði fyrir almenning á Íslandi."
Fólk reynir að veiða lax við Botnsá Patreksfjörð fyrr í …
Fólk reynir að veiða lax við Botnsá Patreksfjörð fyrr í dag.
Veiðimaður hampar laxi sem hann veiddi við Patreksfjörð fyrr í …
Veiðimaður hampar laxi sem hann veiddi við Patreksfjörð fyrr í dag.
mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarnason 19. september 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stefánsson 4. september 4.9.
101 cm Laxá í Dölum Hafþór Jónsson 27. ágúst 27.8.
102 cm Haukadalsá Ármann Andri Einarsson 23. ágúst 23.8.
103 cm Laxá í Aðaldal Birgir Ellert Birgisson 12. ágúst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðaldal Máni Freyr Helgason 11. ágúst 11.8.
101 cm Laxá í Aðaldal Agnar Jón Ágústsson 10. ágúst 10.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert