Að sögn Ingólfs Ásgeirssonar, eins af leigutökum Þverár og Kjarrár í Borgarfirði, hefur veiðin tekið kipp í ánni síðustu daga eftir nokkra langþráða rigningardaga.
Hópur veiðimanna sem lauk veiðum í Kjarrá á hádegi í dag landaði rúmlega 40 löxum eftir þriggja daga veiði á stangirnar sjö. Áin hljóp í flóð eftir mikla rigningu og það virðist hafa hreyft mikið við laxinum og urðu til dæmis Gilsbakkaeyrar sjóðheitar í kjölfarið.
Í Þverá væri nú holl sem búið var að veiða í einn dag í hádeginu og var þá þegar komið með 20 laxa. Hafa menn þar verið að fá lúsuga og gamla fiska í bland. Í morgun veiddust til að mynda tveir lúsugir laxar og var annar þeirra 94 cm hrygna sem Aðalsteinn Pétursson veiddi í Skiptafljóti á svæði 7 sem er ofarlega í Þverá, ekki langt frá skiptingunni við Kjarrá.
Ingólfur sagði að áin væri nú að nálgast 1600 laxa og ef veiði héldi áfram með þessum hætti, þær þrjár vikur sem eftir væru af veiðitímanum, þá væri alls ekki útilokað að heildarveiðin yrði nálægt 2000 laxar. Það yrði ekki langt frá meðalveiði síðustu ára og velviðunandi þar sem miklir þurrkar hafa strik í reikninginn varðandi veiðina í sumar og þá sérstaklega í Kjarrá.
Þá væri gleðilegt að talsvert væri enn af laxi að ganga sem hreyfði þá við þeim fiskum sem fyrir væru. Mikið væri af vænum laxi að veiðast og laxar 80 cm og stærri kæmu á land á hverri vakt.
Varðandi veiðina í Straumunum, í ármótum Norðurár og Hvítár, hafi gengið ágætlega í sumar og um 250 laxar skráðir í bók á stangirnar tvær. Hópur veiðimanna sem lauk tveggja daga veiðum þar í gær fengu átta laxa og 13 væna sjóbirtinga sem væri mjög góð veiði þegar komið væri fram yfir miðjan ágúst. Þetta hafi verið nýlegir og gamlir laxar í bland. Varðandi Brennuna, ármót Þverár og Hvítaár, þá væru í kringum 200 laxar komnir á land sem væri rétt í meðallagi.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |