Fram kemur á vef Veiðikortsins að þessa dagana sé verið sé að leggja lokahönd á útgáfu þess sem gildir fyrir næsta sumar. Verður þetta þrettánda sumarið sem boðið verður upp á þennan veiðimöguleika.
Helstu breytingar verða þær að veiðileyfi í Meðalfellsvatni í Kjós mun ekki lengur vera inni í kortinu fyrir næstkomandi sumar, en hins vegar kemur Berufjarðarvatn á Barðaströnd nýtt inn. Um er að ræða lítið vatn sem er einungis 0,15 km² að stærð þar sem aðallega veiðist urriði sem er frá 1 til 3 pund, en stærri fiskar allt að 10 pund hafa komið þar á land. Vatnið er skammt frá Hótel Bjarkalundi og hægt að aka að því frá hótelinu.
Ekki er útlit fyrir því að aðrar breytingar verði á döfinni fyrir næsta sumar og því munu handhafar Veiðikortsins geta veitt í 35 stöðuvötnum vítt og breitt um landið og verður verð kortsins óbreytt á milli ára.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |