Ytri Rangá opnaði í gær í kolvitlausri austan átt þannig að veiðimenn áttu í miklu basil með að koma flugunni á rétta staði.
Þrátt fyrir það var ágætis veiði sem skilaði 23 löxum á land fyrsta daginn sem þótti gott miðað við slæmar aðstæður. Að sögn Jóhannes Hinrikssonar, umsjónamanns árinnar, þá virðist talsvert af laxi kominn í ánna, einkum þá á neðri svæðin.
Ytri Rangá var í forystusæti yfir íslenskar laxveiðiár hvað veidda fiska varðar síðastliðið sumar þegar 9323 laxar veiddust í heildina.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |