56.000 laxar sluppu úr eldiskví

60 cm gat sem kom í ljós í lok janúar …
60 cm gat sem kom í ljós í lok janúar á einni af fjórum eldiskvíum fyrirtækisins Flokens Fiskefarm í Dyvika í Førdefjorden. Um 60.000 þriggja kílóa laxar voru í þessari kví en óljóst hvað margir laxar sluppu. Flokenes Fiskefarm

Fram kemur hjá RUV í morgun að 56.000 laxar hafi sloppið úr eldiskví við bæinn Nærøy í Þrændalögum í Noregi. Fiskeldisfyrirtækið Marine Harvest var með 180.000 laxa þar í kvíum við Geitryggen skammt við Nærøy. 

Í frétt norska ríkisútvarpsins NRK kemur fram að um 180.000 laxar hafi verið í þessari kví og meðalþungi þeirra verið um tvö kíló. Þetta eru rúmlega fimm sinnum fleiri laxar en sluppu úr norskum eldiskvíum allt árið í fyrra þegar slíkar tilkynningar voru upp á samtals 10.000 eldislaxa.  

Marine Harvest segir að þar sé litið á þetta sem mjög alvarleg atvik sem verður rannsakað í samvinnu við sjávarútvegsráðuneytið og mun Fiskistofu Noregs koma á vettvang í dag og rannsaka aðstæður nánar.

Í gær var fólk í næsta nágrenni í óðaönn við að reyna veiða strokulaxa, þar sem Marine Harvest býður 300 norskar krónur fyrir hvern veiddan eldisfisk sem skilað er til þeirra. Þar sem nýbúið var að gefa þessum löxum ormalyf þá eru þeir ekki hæfir til manneldis.

Þess má geta að á Íslandi veiðast að meðaltali um 50.000 villtir laxar á hverju sumri og sé miðað við 60% veiðihlutfall er íslenski laxastofninn um 85.000 laxar. Hrygningarstofn íslenska laxins er því talinn sveiflast á bilinu 35 til 55.000 laxar.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
100 cm Mýrarkvísl Tim Racie 23. júlí 23.7.
102 cm Víðidalsá Ragnheiður Þengilsdóttir 14. júlí 14.7.
106 cm Laxá í Aðaldal Kristrún Ólöf Sigurðardóttir 8. júlí 8.7.
100 cm Blanda Patrick Devennie 20. júní 20.6.
100 cm Kjarrá Sigurður Smári Gylfason 19. júní 19.6.
Veiðiárið 2023:
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert