Rólegt í Fnjóská

Glímt við lax á Malareyrinni á svæði eitt í Fnjóská.
Glímt við lax á Malareyrinni á svæði eitt í Fnjóská. fnjoska.is

Enn er fremur rólegt í Fnjóská en menn höfðu vonast eftir góðum göngum af smálaxi nú um mánaðamótin.

Í samtali við Guðmund Gunnarsson hjá Stangveiðifélaginu Flúðir, sem hefur haft Fnjóská á sínum snærum um áratugaskeið, kom fram að hann hefði verið þar að veiðum nú um helgina ásamt fleiri félagsmönnum.  Voru flestir þar þaulvanir og landaði hollið 15 löxum á tveimur dögum á stangirnar átta sem sé í með því allra minnsta sem þeir hafi fengið á þessum tíma á síðustu árum.  

Guðmundur sagði að ástandið í Fnjóská væri þó mun betra en í fyrra og miklu meira líf í ánni. Menn urðu varir við fisk á öllum svæðum sem er ólíkt því sem var í fyrir ári þegar lítið líf var í ánni enda var það eitt lélegasta veiðiár í sögu hennar og heildarveiðin varð rétt rúmlega 100 laxar.

Þá urðu menn varir við talsvert af nýjum laxi á neðsta svæðinu en hann virðist stoppa lítið á hefðbundnum stöðum eins og Hellunni og Kolbeinspolli þar sem lítið vatn er í ánni vegna hinnar miklu veðurblíðu norðanlands í sumar og Laufásfossar því lítil fyrirstaða.  Guðumundur kvaðst hafa verið að veiða Helluna um helgina og orðið þar var við fjóra nýgegna laxa og hefði byrjað að kasta á þá flugu en fimm mínútum seinna voru þrír af þeim horfnir í átt að laxastiganum við Laufásfossa.

Taldi Guðmundur að um 80 laxar væru komnir á land í heildina. Stærsti laxinn fram að þessu er 91 cm hængur sem veiddist á spón á Sandinum og var settur í klak.

Þá hefur Guðmundur ásamt öðrum verið með veiðirétt að hluta í Skjálfandafljóti sem hefur verið  „haugskítugt“ í allt sumar og sé það önnur hlið á veðurblíðunni norðanlands því við þau skilyrði yrði sólbráðin svo mikil í jöklinum að fljótið litaðist mikið og yrði þar af leiðandi mjög erfitt til veiða. Í heildina væri þar ekki búin að vera góð veiði í sumar en um leið og kólnaði yrði auðveldara um vik að veiða þar.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert