Rangárnar draga vagninn

Gímt við lax í Eystri-Rangá sem er toppveiðiáin þessa dagana.
Gímt við lax í Eystri-Rangá sem er toppveiðiáin þessa dagana. ranga.is

Vikulegar veiðitölur úr laxveiðiám landsins birtust í morgun á vef Landssambands veiðifélaga, en tölfræðin nær frá 9. til 15. ágúst. Eystri- og Ytri-Rangá eru farnar að draga vagninn hvað fjölda laxa varðar og Þverá/Kjarrá í Borgarfirði dottin niður í þriðja sætið.

Eystri-Rangá er komin í efsta sætið þar sem heildarveiðin er komin í 2.651 laxa og þar er mjög mikil veiði þessa dagana og veiddust 649 laxar í síðustu viku. Á sama tíma fyrir ári stóð heildarveiðin í 1.401 veiddum laxi. 

Í öðru sæti er Ytri-Rangá með heildarveiði 2.288 laxa og gaf síðasta vika 396 laxa. Á sama tíma fyrir ári stóð heildarveiðin í 3.746 veidda laxa. 

Þverá/Kjarrá í Borgarfirði er dottin í fjórða sætið þar sem veiðin er komin í 2.202 laxa en þar veiddust aðeins 91 lax í síðustu viku og veiði heldur farin að róast og áin farin að sýna merki um vatnsskort. Á sama tíma fyrir ári voru komnir þar á land 1.600 laxar.

Hér er list­inn yfir 10 efstu árnar eins og staðan er þessa vik­una.

  1. Eystri-Rangá 2.651 lax­ar - viku­veiði 649 lax­ar (1.401 á sama tíma 2017)
  2. Ytri-Rangá 2.288 lax­ar - viku­veiði 396 lax­ar (3.746 á sama tíma 2017)
  3. Þverá og Kjar­rá 2.202 lax­ - viku­veiði 91 lax­ar (1.600 á sama tíma 2017)
  4. Miðfjarðará 1.863 laxar – vikuveiði 181 laxar (2.386 á sama tíma 2017)
  5. Norðurá 1.408 lax­ar - viku­veiði 47 lax­ar (1.302 á sama tíma 2017)
  6. Haffjarðará 1.204 lax­ar - viku­veiði 83 lax­ar (980 á sama tíma 2017)
  7. Langá 1.209 laxar – vikuveiði 87 laxar (1.149 á sama tíma 2017)
  8. Urriðafoss í Þjórsá 1.095 laxar – veiðitölur ekki borist
  9. Selá í Vopnafirði 863 lax­ar – veiðitölur ekki borist
  10. Blanda 848 lax­ar - viku­veiði 16 lax­ar (1.331 á sama tíma 2017)


Nánar má kynna sér þessar tölur hér.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stefánsson 4. september 4.9.
101 cm Laxá í Dölum Hafþór Jónsson 27. ágúst 27.8.
102 cm Haukadalsá Ármann Andri Einarsson 23. ágúst 23.8.
103 cm Laxá í Aðaldal Birgir Ellert Birgisson 12. ágúst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðaldal Máni Freyr Helgason 11. ágúst 11.8.
101 cm Laxá í Aðaldal Agnar Jón Ágústsson 10. ágúst 10.8.
101 cm Laxá í Aðaldal Richard Jewell 9. ágúst 9.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert