Lax sem veiddist fyrir landi Ármúla í ósi Selár í Ísafjarðardjúpi 24. júlí síðastliðinn var eldislax af norsku kyni og reyndist vera kynþroska hængur með svilasekki og hefði þannig verið tilbúinn til þátttöku í hrygningu nú í haust að mati sérfræðinga.
Samkvæmt frétt frá Landssambandi veiðifélaga var um að ræða 63 cm hæng sem vigtaði 4,2 kíló. Hann var með áberandi skemmdan sporð og ugga. Þá kom í ljós við rannsókn að hann var með samgróninga sem afleiðingu bólusetningar sem hann hefur fengið.
Þetta mun vera annað sumarið í röð sem staðfest er að eldisfiskur veiðist fyrir landi Ármúla, en sumarið 2017 veiddist þar regnbogasilungur.
Selá er ein af vatnsmestu ám á Vestfjörðum og á upptök sín á Ófeigsfjarðarheiði og í Drangajökli í um 500 metrum yfir sjávarmáli. Að meðaltali veiðast rúmlega 30 laxar á sumri í ánni og nokkur hundruð sjóbleikjur.
Fram kemur að sumarið 2017 hafi veiðst fyrir landi Ármúla um 130 sjóbleikjur á tveggja mánaða tímabili og hefur veiðin nú í sumar verið heldur meiri. Veitt er í eitt net helming vikunnar.
Hafa landeigendur Ármúla ítrekað krafist þess af Umhverfisstofnun að stofnstærð sjóbleikjunnar í Ísafjarðardjúpi verði rannsökuð nánar og farleiðir hennar þannig kortlagðar til þess að unnt sé að meta umhverfisáhrif sjókvíaeldis í Ísafjarðardjúpi á stofninn, meðal annars með tilliti til mengunar og slysasleppinga. Hefur þessu alltaf verið hafnað og án sérstaks rökstuðnings að mati landeigenda.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |