Risahængur kom á land í gærkvöldi úr Laxá í Dölum og er hann jafnframt stærsti lax sumarsins úr ánni.
Það var 105 cm hængur sem veiddist í Höfðafljóti en ekki kom fram hvaða flugu sá stóri tók.
Haustin geta verið gjöful í Laxá auk þess að það er oft sá tími þegar stærstu laxar sumarsins eru dregnir þar að landi. Það rigndi talsvert í Dölunum um mánaðamótin síðustu og tóku veiðitölur þá talsverðan kipp aftur, en eftir mjög góða veiði framan af sumri þá róaðist hún talsvert þegar kom fram í ágúst.
Tæplega 1.000 laxar eru komnir á land þannig að líklegt er að áin sigli því yfir meðalveiði síðustu 30 ár sem er um 1.100 laxar.
Til viðbótar við þann stóra frá því í gær hefur tekist að landa tveimur öðrum risahængum, 104 cm úr Helgabakka sem veiddist í upphafi veiðitímans og 102 cm sem kom úr Svartafossi undir lok ágúst.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |