Fyrstu urriðarnir voru færðir til bókar í Minnivallalæk um helgina. Hrafn H. Hauksson og félagar hans lönduðu ellefu fallegum urriðum og voru þeir allt upp í 66 sentimetra langir. Hrafn er þrátt fyrir ungan aldur með mikla reynslu af læknum og nær þar yfirleitt góðum árangri. Þótt hann sé aðeins 23 ára hefur hann veitt svæðið í mörg ár. Hann starfar allt sumarið sem leiðsögumaður hjá Hreggnasa sem leigir nokkrar af bestu laxveiðiám landsins.
„Miðað við ástundun var þetta fín veiði. Við fórum seint út og hættum snemma. Við veiddum þessa fiska á Pheasant Tail-púpur. Ég nota ekki aðra flugu orðið í Minnivallalæk og það er einfaldlega vegna þess að hún er langsterkust. Ég hef komið þarna í júní og séð fisk vera að taka flugu í yfirborðinu og einsett mér að taka fisk á þurrflugu. Það hefur alveg tekist en svo fer maður með púpuna á eftir og tekur kannski tíu á stuttum tíma.“
Hrafn veiðir andstreymis og með tökuvara en er að fikra sig áfram með euro-nymphing. Þá er ekki notuð flugulína, bara taumur og enginn tökuvari. „Maður er ekki að ná nema stuttum köstum. Kannski lengst svo átta metra. Þannig að maður er í meira návígi við fiskinn og Finnur alveg fyrir því í hnjánum að maður er búinn að vera að skríða allan daginn,“ segir Hrafn.
Hann hefur líka reynt straumflugur í Minnivallalæknum en útkoman hefur verið svipuð. Oft hefur veiðin í læknum verið mest í kringum veiðihúsið, á Húsbreiðu og í Stöðvarhyl. Hrafn og félagar voru hins vegar að fá þennan fisk út um allt. „Það er eins og lækurinn hafi aðeins breytt sér og minna er af fiski á þessum hefðbundnu stöðum við veiðihúsið. En við fengum tökur og fiska í öllum stöðum sem við köstuðum á. Það er eins og fiskurinn sé dreifðari en oft áður.“
Stærðirnar voru ekki amalegar. Þannig voru fjórir urriðar í kringum 55 sentimetra og fimm voru 60 sentimetrar plús og sá stærsti 66 sentimetrar. Stærsti fiskur sem Hrafn hefur landað úr læknum er 78 sentimetra urriði. Minnivallalækur er þekktur fyrir gríðarstóra urriða. Veiði hófst þar formlega 1. apríl en fyrstu fiskana á þessari vertíð bókuðu þeir félagar síðastliðinn laugardag.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |