Fyrstu urriðunum úr Villingavatni var landað í gær. Vatnið, sem stundum gengur undir nafninu Tjörnin er skammt frá syðsta hluta Þingvallavatns. Þar hafa oft gefið sig stórir urriðar og eru þeir af sama stofni og nágrannar þeirra, urriðarnir í Þingvallavatni.
Ragnar Ingi Danner og félagar hófu veiðar þar í gær og settu í sjö og lönduðu þar af fjórum urriðum og var sá stærsti um fimm pund. Sporðaköst heyrðu í þeim félögum nú í hádeginu þegar þeir voru komnir í bíl til að næra sig. „Við vorum næstum því orðnir úti,“ hlær Ragnar þegar hann svarar spurningunni; Hvernig eru aðstæður? „Það er bálhvasst, en hlýtt. Hálft vatnið er gruggað og töluverð alda. Þetta er samt alltaf gaman,“ segir Ragnar.
Ragnar setti í hörkufisk í öldunni í morgun. „Ég var að veiða við landið í grugginu og fékk þessa feikna töku. Lausa línan hjá mér flæktist í einhverju í rokinu og eftir að stöngin bognaði alveg ofan í vatn fór hann. Þetta var hörkufiskur. Ég fann það þó ég sæi hann ekki.“ Þeir félagar hafa verið að nota straumflugu sem er hönnuð af Ragnari Inga og ólívugrænan Nobbler. „Hún heitir ekkert þessi sem ég bjó til. Hefur ekki fengið nafn enn. Þetta er bara svona eitthvert monster.“ Í morgun höfðu þeir sett í fjóra fiska og þeir tóku allir „monsterið.“
Um síðustu helgi var svo mikill ís á Villingavatni að varla sá á vök. Þeir félagar voru því frekar stressaðir yfir því hvernig aðstæður yrðu. „Allur ís var farinn af vatninu í gær og okkur var létt þegar við komum hingað.“
Ragnar og félagar hafa orðið varir við fisk nánast hvert sem þeir hafa farið þannig að þeim finnst þetta líta vel út. Hollenski veiðimaðurinn Auke van der Ploeg landaði stærsta fiskinum og er það hinn myndarlegasti urriði.
Veiðitíminn í Villingavatni er frá 1. apríl og fram til 15. september. Að þessu sinni fór ís af vatninu ekki fyrr en rétt fyrir helgi og var ekki veiðandi í því fyrr en nú. Fjórar stangir eru leyfðar í vatninu. Á næstu dögum opna fleiri spennandi urriðastaðir í sjálfu Þingvallavatninu. Þannig er opnun á ION svæðinu á morgun og verða það sjálfsagt spenntir veiðimenn sem taka þar fyrstu köstin.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |