Risalaxinn sem veiddist í sænsku stórlaxaánni Mörrum tók afbrigði af „The Bananafly“ eða Bananaflugunni. Sporðaköst fóru þess á leit við veiðimanninn Aik Boyman að hann tæki mynd af flugunni sem fiskurinn tók. Boyman, sem enn er brosandi, brást vel við þessu erindi og sendi okkur mynd af flugunni sem sá stóri tók. Hann segir að þetta sé ekki upprunalega Bananaflugan, heldur þróað afbrigði.
Þetta er gerðarleg túpufluga og hefur haldið sér býsna vel þrátt fyrir átökin. Laxinn sem Boyman landaði er einn af þeim stærstu á þessari öld úr Mörrum. Hann mældist 118 sentímetrar og vó 19,3 kíló. Viðureignin stóð ekki nema í hálftíma en hann var tekinn á tvíhendu og að Eriks Hellquist sem háfaði fiskinn var tekið hraustlega á honum.
Á síðasta áratug síðustu aldar komu á land níu laxar sem vigtuðu 50 pund eða meira í Mörrum.
Nú er spurningin hvort sænskir stórlaxar hafi svipaðan smekk eins og þeir íslensku. Ef svarið við þeirri spurningu er já, þá er bara að setjast við hnýtingagræjurnar og útbúa eina svona.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |