Á þriðja tug veiðimanna mætti á flugukastnámskeið Árvakurs og Veiðihornsins, sem fór fram í Hádegismóum og við Rauðavatn í gær. Þrír fullnuma kennarar úr skóla FFI sáu um hópinn og leiðbeindu um handtökin á bæði einhendu og tvíhendu. Áhugi á námskeiðinu var mikill og fylltist hvert einasta pláss og ríflega það. Kennarar voru þeir Börkur Smári frá Flugukast.is, Björn Gunnarsson og Hilmar Jónsson en þeir eru allir viðurkenndir kastkennarar frá FFI.
Fyrst var komið saman í húsnæði Morgunblaðsins og Ólafur Vigfússon eigandi Veiðihornsins fór yfir undirstöðu hugtök og merkingu þeirra þegar kemur að vali á búnaði. Bæði stangir og ekki síður línur við hæfi. Börkur Smári Kristinsson flugukastkennari fór svo yfir sjálft kastið og hvernig best er að framkvæma það.
Því næst var haldið niður að Rauðavatni og þar tók við verkleg kennsla. Hópurinn samanstóð af byrjendum og lengra komnum og einnig vildi hluti hópsins kynnast tvíhendu og hvernig rétt er að kasta með slíkri stöng.
Þrátt fyrir nokkra vætu og smá strekking voru þátttakendur hæst ánægðir og ljóst að margir fóru með mikið vegarnesti af stað inn í sumarið. Þetta var fyrsta tilraun af þessu tagi á vegum Morgunblaðsins og Veiðihornsins og er afar líklegt að þetta verði endurtekið að ári.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |