Jóhann Hannesson setti í sannkallaða „fjallasleggju“ í fyrsta kasti í Haukabrekkuvatni skömmu eftir hádegi. Það er drjúg ganga að vatninu sem liggur hátt á Snæfellsnesi og er í einkaeigu. „Ég prílaði hérna upp og bara í fyrsta kasti tók þessi svaka sleggja. Þetta voru alveg átök og hún var virkilega sterk,“ sagði Jóhann í samtali við Sporðaköst skömmu eftir að bleikjunni var landað.
„Hún tók frekar stóran Woolly Bugger og kjafturinn á henni er alveg svakalegur. Ég tók ekki með mér málband svo ég er ekki búinn að mæla hana eða vigta. Ég hef áður landað fimm punda bleikjum en þessi er töluvert stærri og bara ótrúlega vel haldin.“
Jóhann deildi myndum af sleggjunni á Facebook-síðu sinni og sagði: „Rétt upp h[önd], sem hefur séð svona stóra bleikju.“
Hann segir þennan fisk koma skemmtilega á óvart, sérstaklega þar sem hann og fleiri hafa verið að grisja í öðrum vötnum á nesinu. „Þar var óhemja af fiski en ekkert nema litlir skiptilyklar. Þess vegna er svo gaman að sjá aðstæður hér í vatninu.“
Jóhann var að koma til byggða eftir langa og stranga göngu. Bleikjan mældist 63 sentímetrar og vó sex pund. Glæsilegur fiskur og frábær kvöldmatur.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |