Veiðiþjónustan Strengir hefur nú opnað laxveiðisvæði sín. Breiðdalsá á Breiðdal opnaði í gær og urðu veiðimenn varir við laxa á nokkrum stöðum.
Það var Gunnlaugur Stefánsson, prestur í Heydalaprestakalli í Austfjarðaprófastsdæmi, sem náði þeim fyrsta á land og var það 80 cm hrygna sem tók hálfs tommu Rauða Francis í Sveinshyl. Erlendir veiðimenn sem einnig dvelja í ánni þessa dagana urðu eitthvað varir við fleiri laxa þótt ekki hafi fleiri náðst á land.
Fram kemur að í Hrútafjarðará, sem Strengir hafa einnig í sinni umsjá, hafi verið erfið skilyrði frá því hún opnaði vegna lágrar vatnsstöðu. Þrátt fyrir það hafa kroppast upp nokkrir laxar síðustu daga.
Þá opnaði Jöklusvæðið síðastliðinn fimmtudag og þar kom lax strax á land úr hliðaránni Laxá. Urðu menn varir við göngu laxa í Steinboganum og Hólaflúð sem veit á gott fyrir veiði næstu daga.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |